Staðan er jöfn, 2:2, eftir venjulegan leiktíma í úrslitaleik FH og Fylkis í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu sem nú stendur yfir í Egilshöll. Leikurinn, sem hefur verið bráðfjörugur og lofar góðu fyrir sumarið, er því framlengdur. Björn Viðar Ásbjörnsson kom Fylki yfir strax á 2. mínútu en Jón Þorgrímur Stefánsson jafnaði fyrir FH á 10. mínútu. FH náði forystunni þegar Jónas Grani Garðarsson skoraði á 20. mínútu en á 58. mínútu jafnaði Finnur Kolbeinsson fyrir Fylki. Mikið fjör var í...