Ford GT, sem er einn þekktasti kappakstursbíll síðari tíma, var fyrst kynntur til sögunnar fyrir nálega fimmtíu árum, nánar tiltekið á blaðamannafundi í Englandi í apríl 1964. Ford GT var sérstaklega hannaður til að keppa í þolaksturskeppnum á lokuðum brautum, í upphafi í hinum fræga Le Mans kappakstri. Sem dæmi um þá áherslu sem lögð var á verkefnið innan Ford má nefna að það var enginn annar en Henry Ford II, sem stóð í fylkingarbrjósti þessa risavaxna verkefnis hjá fyrirtækinu. Hann setti...