Þar sem mér hefur gefist ágætur tími til að fara yfir þær hugleiðingar sem hér koma fram á þessum bráðskemmtilega vef um mitt helsta áhugamál, flugið, hef ég einnig tekið eftir því að mikill meirihluti þeirra greina sem hafa verið sendar inn snúast um það hvort flugvöllurinn i Reykjavík eigi að vera áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni eða hvort finna eigi aðra lausn á því vandamáli sem margir vilja meina að sé að skapast af staðsetningu hans. Eðlilegt, enda mikið hitamál fyrir þá sem hafa...