Við reynum að fara út með hana Aríu okkar í smá labbitúr á hverjum degi. Annars mætum við reglulega í Hvuttaklúbbsgöngu, og nú þegar hestarnir eru komnir, þá fær hún nóga útrás með því að koma með mér í reiðtúra. En ég er þessu alveg sammála, allir hundar þurfa einhverja hreyfingu, en bara mismikla.