sko. ég lít á mig sem Lord of the Rings frík og er stolt af því :o) Ég er búin að lesa bækurnar tvisvar, The Hobbit tvisvar og Silmerilinn einu sinni. Ég er líka búin að sjá myndirnar oftar en ég get talið og finnst þær BARA meistaraverk. En ég verð að viðurkenna að ég varð heldur fúl þegar þeir slepptu alveg dauða Sarúmans. Svo var líka annað mikilvægt atriði sem þeir virðast hafa sleppt algjörlega. og það er hvernig Hérað leit út þegar hobbitarnir komu heim. Finnst ekki nógu sniðugt að sleppa því.