Ég er svo sem enginn aðdáandi RÚV og er langþreyttur á þessari skylduáskriftarvitleysu. Mér finnst Stöð 2 samt ekkert betri en þar hef ég a.m.k. tækifæri að láta óánægju mína í ljós með því að borga ekki afnotagjöldin. Skjár Einn er ókeypis, hefur fína dagskrá og ef ég er eitthvað ósáttur við að horfa á auglýsingarnar sem þeir byggja stöðina sína á þá hef ég valið, horfa eða horfa ekki.