Crouching Tiger, Hidden Dragon kemur út á DVD 5.júní í Bandaríkjunum (Region 1). Búið er að gefa myndina út á DVD í Asíu (Region 3). Hvenær ætli hún koma út í Evrópu?
Þetta er mynd sem ég fæ aldrei leið á. Clint Eastwood alltaf traustur og John Malkovich er ógnvekjandi bilaður. Leikstjórinn Wolfgang Petersen byggir upp spennuna snilldarlega en hann hefur t.d. leikstýrt Das Boot, The Perfect Storm og Air Force One.
Nú er búið að gefa Transformers kvikmyndina út á DVD (Region 1). Það eru ábyggilega margir sem muna eftir þáttunum sem sýndir voru á upphafsárum Stöðvar 2. Meðal radda sem tala inn á kvikmyndina eru Eric Idle, Orson Welles og Leonard Nimoy.
Þessi fína gamanmynd verður gefin út á DVD (Region 1) 9.janúar og mun diskurinn innihalda ný viðtöl við leikara og leikstjóra myndarinnar, heimildamynd um gerð myndarinnar, atriði sem ekki voru notuð og aukahljóðrás með leikstjóranum.
Dinosaur mun koma út á DVD (Region 1) 30.janúar næstkomandi í tveimur útgáfum, önnur inniheldur aðeins myndina en hin útgáfan er tveggja diska pakka með fullt af aukaefni. Svona lítur hulstrið út á stærri útgáfunni.
(Cletus and Brandine, a redneck couple, are kissing in a truck) Brandine: Aw Cletus! Why'd yew have to park by mah parents? Cletus: Now, now, Brandine, they'z mah parents too!
Godfather myndirnar eru þær myndir sem ég vildi helst sjá á DVD á eftir Indiana Jones. Gaman væri ef Godfather Part II diskurinn myndi innihalda báðar útgáfur myndarinnar en nokkrum árum eftir útgáfu myndarinnar í kvikmyndahúsum var sýnd mun lengri útgáfa í sjónvarpinu.
Í þá gömlu góðu daga daga þegar Connery var Bond. Ég vildi að útgefendur Bond myndanna notuðu upprunaleg cover á hulstrin í staðinn fyrir þessar leiðinlegu nærmyndir af aðalleikaranum.
Langt er síðan þessi mynd var sýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum. Það er ekki enn búið að taka hana til sýninga hér á landi. Kemur út á DVD (Region 1) 12.desember.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..