Maður liggur í rúminu hjá konu sinni, þegar allt í einu er bankað á útihurðina hjá þeim. Hann snýr sér við og lítur á klukkuna og sér að hún er hálf fjögur að morgni. “Ekki ætla ég að fara til dyra.” hugsar hann með sér og snýr sér aftur við. Þá er bankað enn harðar á útihurðina. “Ætlarðu ekki að fara til dyra?” spyr kona hans. Jæja, hann dregst á lappir, fer niður stigann og opnar. Þar fyrir utan stendur maður. Ekki fór á milli mála, að maðurinn var vel fullur. “Hæ,” sagði sá drukkni,...