SEC bílarnir komu ári á eftir sedan bílunum, SE(L), eða árið 1980, þó þeir hafi ekki verið framleiddir í miklu magni það árið, 3 eintök af 380 SEC og 1 stykki 500 SEC. Þeim var ekki ætlað að taka við af neinni af fyrri gerðum MB, þar sem SL coupeinn frá ’72 var framleiddur alveg til ársins ’89. En það var augljóst að hann átti að falla inní þá línu benz, stjörnunni var komið fyrir í grillinu eins og á öllum sportbílum þeirra, en ekki uppá húddinu. Notast var við hina byltingarkenndu hönnun...