Það nýjasta frá MM, 6 strengja Bongo. Þessi gripur er smíðaður fyrir John Myung (Dream Theater). Ég hef aldrei kunnað að meta Bongo-lúkkið, þ.e.a.s. þar til ég sá þetta. Hvað finnst ykkur?
Til sölu er eitt stk. Fender Precision FL Made in USA árg. 1996. Bassinn er svartur að lit með hvítri plötu og fingraborði úr rósavið. Á fingraborðinu eru strik sem eru í stað þverbanda sem er mjög gott fyrir óvana að hafa. Eitt örlítið nudd er að finna aftan á honum en annars er hann í fullkomnu ásigkomulagi. Í honum eru Ernie Ball flatwound strengir og annað eins strengjasett fylgir með. Einnig fylgir harðtaska með. Þetta hljóðfæri hef ég aðeins einu sinni notað opinberlega en annars hefur...
Þannig er mál með vexti að tölvan mín er farin í gríð og erg að senda mér skilaboð um spyware og alls konar annan skít sem er að valda mér og tölvunni vandræðum. Þetta gerir það að verkum að ég m.a. kemst ekki inn á ýmsar vefsíður, s.s. b2.is og ebay.com sem mér finnst sérstaklega bagalegt vegna hugsanlegra kaupa sem ég ætla að gera þar. Hvað leggið þið til að ég geri í málinu, svona til að bjarga mér fyrir horn (t.d. vírusvarnir eða eitthvað álíka)?
Progressive metal hljómsveitin Queensrÿche. Meðal þeirra þekktustu verka er hin stórgóða concept-plata Operation: Mindcrime sem ég mæli með að fólk kynni sér.
Þessi mynd var tekin af Íslandsvinunum í Iron Maiden á tónleikum sem þeir héldu til styrktar Clive Burr fv. trommuleikara sveitarinnar (þessi í hjólastólnum) en hann berst við MS sjúkdóminn.
Geddy Lee, söngvari, bassaleikari og hljómborðsleikari Rush með græjurnar sem hann notaði í kringum 1980. Hljómborðin eru annaðhvort Moog eða Oberheim, á gólfinu eru Moog Taurus bassapedalar og bassinn/gítarinn er Rickenbacker 4080.
Neil Peart, trommuleikari Rush með DW trommusett sem var smíðað sérstaklega fyrir “30th anniversary” tónleikaferðalagið sem þeir félagar fóru í á síðasta ári.
B747 að lenda með tilþrifum. Rétt er að taka fram að það var ekki eins mikill hliðarvindur á brautina og fólk gæti haldið. Myndin er tekin af airliners.net.
Oft hefur verið sagt að umslag plötunnar Somewhere in time með Iron Maiden sé eitt alflóknasta plötuumslag sem hefur komið fram á sjónarsviðið en á því eru margar tilvísanir í sögu hljómsveitarinnar og meðlima hennar. Ég ætla með þessari grein að varpa smá ljósi á umslagið og vona ég að þið hafið gagn og gaman af. 1: “This is a very boring painting” Þetta stendur skrifað afturábak fyrir aftan hægri fótlegg Eddie. 2: Aftan á umslaginu neðst til vinstri er Ruskin Arms klúbburinn. Þeir spiluðu...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..