Ég lít ekki á Harry Potter sem barnabækur, að vissum hluta vegna þess að ég dái þær, og er ekki barn. Hinsvegar finnst mér það vera vitleysa að þær höfði ekki til barna. Á pörtum eru þær of myrkar og flóknar fyrir ung börn að skilja og njóta, en það breytir því ekki að þetta eru einar vinsælustu bækur allra tíma meðal barna. Ég veit um mörg börn á aldrinum 8-12 ára sem hafa mjög gaman af Harry Potter, og hafa flest lesið þær oftar en einu sinni í gegn.