Ég á enga hluti sem ég vil láta, er ekki á skóla og get því ekki tekið út orlof, er að fá 100þús lán frá foreldrunum, og þekki engann sem hefur aukavinnu handa mér… annars væri ég ekki að spurja hér. Takk samt fyrir góðar tillögur :)
Talandi um þýðingar á nöfnum þá listar þú Mist sem hugsanlegt fyrir barnið þitt. Ég veit ekki betur en að það hafi hræðilega merkingu. Annars er 1 einstaklingur á landinu sem heitir Hörður Mörður. Gott með foreldrana að bara sjá um uppnefni sjálf, spara smá tíma fyrir hrekkjusvín framtíðarinnar. Það er líka ein dama sem heitir Hneta.
Sammála þér með verst… fannst reyndar mjög skondið þegar fréttakonan sagði að Björgólfur væri mættur með “spengilegan bossann”. Það var engin pása eins og þetta ætti að vera mega fyndið heldur bara svona skotið inní. Flissaði vel yfir því hvernig hún sagði það.
Mér fannst Ilmur að leika Ragnhildi Steinunni æðislegt… náði að captura mjög vel hversu vandræðalegir þessir þættir eru í raun. Fílaði Kjartan sem fyrrum borgarstjóra í botn… yndislega trylltur elsku maðurinn. Daman sem lék Þorgerði Katrínu negldi hana svoleiðis að hún á medalíu hjá mér. Tilbúna sagan á bak við Helvítis Fokking Fokk skiltið… Og margt fleira. Fannst þetta mjög gott Skaup svona til tilbreytingar. Það voru lítið spennandi atriði inn á milli, en þau bestu standa uppúr.
Var í svörtum og hvítum sniðlausum silkikjól í anda 3. áratugarins, og í svörtum lakkskóm með hvítri rönd (og insane hælum)… mjög flott dress. Sérstaklega þegar ég var komin með svart 20s clutch með og í huge mokkakápu. Leið eins og stjörnu :D
Ha. ha. :) Klókir menn mundu skilja mig þannig að parið væri búið að rembast við að verða ólétt en allt fyrir ekki… síðan ættleiðir það og heldur bara áfram að stunda sína sexercise eins og venjulega, en þá er allt í einu ekkert mál að barna kvendið. Því pressan að geta barn var horfin.
Hef ekkert horft á þetta en séð svona atriði og atriði… fötin eru mörg hver sjúk, og eru eina ástæðan fyrir að ég gæti hugsað mér að horfa á Gossip Girl. Annars held ég að engum finnist Chuck & Blair eitthvað annað en gullfalleg í fésinu…
Ég sé ekki muninn. Ef þú gengur um alla Smáralindina með klósettpappír á skónum líturðu út fyrir að vera fífl. Sama með lélega stafsetningu og málfræði.
Það má vel vera að það sé ekki besta leiðin til þess… en það breytir því ekki að ef ég sé manneskju í smáralind með klósettpappír fastann í skónum, þá læt ég hana vita.
Það er til slatti af fólki sem vill bæta sig en ekki alltaf nauðga íslenskri tungu og hljóma eins og ómenntað gimp. Pældu í því hvað það væri líka auðvelt að segja bara: “Já úps, takk” við kommentum frá fólki sem þykir vænt um móðurmálið sitt í staðinn fyrir að byrja alltaf á þessari biturð: “Æi mér langar bara að skriva þetta einsog mér langar! Þegjiðu!” Fólk sem á við námsraskanir að stríða eða er bara hreinlega kraftvangefið er undanskilið, að sjálfsögðu. Persónulega finnst mér ekkert...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..