Ég er að drepast í stórutáni á vinstri fæti, ógeðslega vont, ég bara get ekki gengið venjulega. Það var þannig að ég var á júdó æfingu og allt gekk bara vel, þegar ég ætlaði að kasta einum strák sem er örlítið þyngri en ég, en þegar ég kastaði honum lenti hann með hnéð, ofan á stórutánni. Þjálfarinn minn náði í ísmola til að setja á tærnar og þurfti ég að vera þá nær allt kvöld, og akkúrat þetta kvöld var eitthvað bíókvöld í skólanum mínum sem ég ætlaði ekki að missa af, en þá gat ég ekki...