Halló, ég heiti Basmati Kasaar. Ég þjáist af sjaldgæfum og lífshættulegum sjúkdómi, lélegum einkunnum á lokaprófum, áralöngum sveindómi, hræðslu við að vera rænt af mannræningjum og líflátinn með raflosti í endaþarm og sektarkennd yfir því að senda ekki áfram 50 billjón helvítis keðjubréf sem ég hef fengið send frá fólki sem trúir því virkilega að ef maður sendir þau áfram, þá muni aumingja kellingin í Arkansas, sem er með brjóstið á enninu, safna nægum fjármunum til að láta fjarlægja það...