Vá, þetta er svo innilega ekki mín reynsla af Og Vodafone. Nema þetta með langan biðtíma eftir þjónustu, hann er algjör dauði. Ég fékk tenginguna fyrir rúmu ári og fyrir utan smá byrjunar hnökra þá hefur tengingin virkað eins og vindurinn síðan. Síðan var ég með nokkur netföng hjá islandia.is frá gamalli tíð, og þar sem islandia er nú hluti af Og Vodafone þá spurði ég hvort það væri ekki hægt að flytja þessi netföng yfir á adsl áskriftina til að ég yrði ekki tvírukkaður fyrir þau. Það var...