Úff, ég verð að biðja menn afsökunar á því að hafa skrifað þetta skaðræðistól á sínum tíma. Það var reyndar EKKI hannað til að svindla í 1vs1, heldur til að halda utanum team powerups í CTF (fyrir vörnina). Mér fannst þetta ekki beint svindl, þar sem team-a hefur ekki mjög mikla möguleika að eygna sér powerups hjá team-b, þar til jolli benti á að þetta væri nú ekki beint “kósher”, ég tók þá forritið strax niður af síðunni minni, en það voru samt nokkrir búnir að sækja það, því ég peistaði...