Raunvísindi eru áberandi á vefsíðum Huga um vísindi og fræði. Hér er þó líka skrifað um sagnfræði og t.d. birtir tenglar á greinar um heimspekinga (þar er reyndar áberandi vöntun miðaldaheimspekinga; Vilhjálmur frá Occam var ekki þeirra mestur, svo mikið er víst). Að öðru leyti er nánast verið að sniðganga hugvísindin (og dulspeki tel ég ekki til vísinda!). Hvar er sálfræði, félagsfræði, guðfræði, lögfræði, stjórnmálafræði og bókmenntafræði? Þetta er ekki sett fram til að gagnrýna, heldur...