Hlutbréf í Sony hafa lækkað um 2,75% í kjölfar þess að fregnir hafa borist af því að Playstation 3 leikjatölvan virki ekki sem skyldi, vélar sem sýndar voru á leikjasýningunni í Tókýó fyrir skemmstu þóttu óstöðugar í vinnslu og þurfti ítrekað að endurræsa vélarnar. Tilgátur eru uppi um að hinn meinti galli tengist ofhitnun, það þykja hins verar slæm tíðindi fyrir Sony að slíkir gallar komi í ljós svo skömmu fyrir útgáfu vélarinnar. Tæknivandamál hafa tafið framleiðslu vélarinnar sem koma...