Ég var að lesa aftan á hulstur af dvd diski þar sem einungis var skrifað á dönsku norsku og sænsku. Ég fór auðvitað strax í danska textann, maður búinn að læra dönsku í þrjú ár og er svona meðalmaður í dönsku (miðað við árganginn minn)og átti í þvílíkum erfiðleikum með þennan texta þangað til að stjúpbróðir minn benti mér á að prufa sænska textann sem ég náði á hálfri mínútu.