Veitingahúsinu Nyla í New York, sem tengist söngstjörnunni Britney Spears, verður bráðlega lokað eftir aðeins fjögurra mánaða rekstur. Á ýmsu hefur gengið eftir að veitingahúsið var opnað, þar á meðal kom upp matareitrun, þrír yfirmatreiðslumenn hafa hætt störfum hver á eftir öðrum og menn börðust með hnífum utan við veitingahúsið. Fréttavefurinn Bang hefur eftir heimildarmanni að Nyla verði lokað innan skamms. Hann segir að Britney hafi ekki lagt fé í reksturinn heldur aðeins lánað nafn...