Svarið við titlinum er hiklaust já. Black og death metall hefur verið mjög vinsæll á klakanum uppá síðkastið. Mín kenning er sú að ástæðan fyrir því að fleiri hljómsveitir séu að spila svona metal frekar en t.d. Pantera style metal sé sú að það er auðveldara að gera sæmilegan black/death metal heldur en gott thrash. Með þessari kenningu er ég þó ekki á nokkurn hátt að gera lítið úr okkar ágætu böndum eins og t.d. Changer og Severed Crotch, þeir eru mjög færir á sínu sviði. En þetta er samt pæling.