Reyndar gerði ég þetta fyrir kærustuna mína en mér finnst að þetta megi koma fram hérna ;) Einu sinni þegar hún var í sturtu þá stökk ég af stað um leið og hún lokaði inná bað, tók fram grilljón kerti og bjó til “stíg” uppað rúmi og setti líka fullt af kertum útum ALLT herbergi. Síðan kveikti ég á þeim öllum, slökkti ljósið og náði í nuddolíu sem ég hafði keypt fyrr um daginn. Svo beið ég fáklæddur uppí rúmi og bauð uppá alhliða nuddþjónustu. Svipurinn á henni þegar hún kom fram var frábær...