Skemmtilegur þáttur um besta söngvara sögunnar. Skrýtið samt að þeir skyldu bara tala við Roger (sem virtist hafa mætt nývaknaður í viðtalið) en ekkert við Brian eða John. Fannst líka leiðinlegt að þeir skyldu segja að Freddie hafi stofnað Queen sem er auðvitað ekki alveg rétt. Svo fékk maður auðvitað kökk í hálsinn og tár á hvarm í lokin, blessuð sé minning þessa mikla meistara.