Ég á 661 hlífarnar sem þú ert að pæla í og get ekki annað en mælt með þeim. Ég hef ekki notað aðrar hlífar en sé ekki ástæðu til þess þar sem þessar fullnægja öllum mínum þörfum, ná hátt og lágt og eru þægilegar. Einnig er mjög flottur stuðningur við hnéð, og hnéskelina í þeim, ég er með frekar bæklað hné þar sem ég sleit einhver liðbönd í þeim og þarf að nota svona spes hné hlíf sem kostaði alveg 8þús kall en 661 hlífin kemur með svipuðum grunn stuðning og þessi ofur hlíf mín sem ég nota annars.