Ef það er einhver áhugi hjá einhverjum ykkar að skrifa umfjallanir um einhverjar sniðugar græjur tengdar hjólum þá endilega talið við mig og ég gef ykkur leyfi til að senda inn greinar á “Græjuhornið” Ég tek það samt fram að þetta er eingöngu ætlað fyrir mjög vandaðar greinar/umfjallanir. Gott er að taka til fyrirmyndar þær greinar sem Kindin hefur sent inná Græjuhornið á /jadarsport.
Í tilefni þess að við vorum að fá þessa frábæru gjöf frá yfirstjórn huga ætla ég að efna til samkeppni fyrir banner á þetta þráða áhugamál. Hugsunin var að reyna að fá eitthvað sniðugt frá ykkur notendum og leyfa þannig sjálfum notendunum að hafa áhrif á hvernig síðan þeirra lítur út. Ég er búinn að hugsa þetta smá og að mínu mati væri flott að hafa hann nokkuð “neutral” þannig að hann gæti coverað allt sem snertir hjol eða eitthvað sem öll hjól eiga sameiginlegt, ekki bara einhverjir gaurar...
Loksinns. Þetta tók sinn tíma en það hófst á endanum. Þetta er bara til prufu núna fyrst um sinn þannig að það er eins gott að við verðum duglegir að sinna þessu, senda inn myndir, video, greinar, og í græjuhornið… Núna með þessu tel ég að hugi hafi opnaði sig frekar fyrir öðrum geirum í hjólasportinu, racerum, xc, am og bara öllu sem varðar við hjól. Þannig að verið velkomnir á þetta nýja stærsta áhugamál huga.is. :)
Jæja loksinns…. endilega kíkið inn á www.hugi.is/hjol þetta er í prufu keyrslu núna og við sjáum til hvernig þetta gengur. Núna fá hin jaðarsportin meira svigrúm hérna :D
Jæja loksinns! Video kubburinn er kominn í gagnið, og hérna eru smá punktar um hann 1. Til að koma efni í hann verður þú að setja efnið þitt á www.youtube.com, og senda mér síðan link á síðuna þar sem videoið er. Ég geri síðan rest. 2. Nýjasta videoið verður það sem sést á forsíðu áhugamálsinns, önnur eldir sjást þegar þú smellir á “Sjá Meira”, einnig mun nýjasta videoið vera þar, vegna þess að videoin eru stærri þar :) 3. Ekkert rugl 4. Þetta er svona til að byrja með og ég áskila mér öllum...
Hvað finnst fólkinu? Persónulega finnst mér þetta vanta hérna, ég er alveg vis sum að það eru margir sammála mér, amk á /jadarsport, hjólamenn eru alveg að kæfa niður önnur jadarsport þar og síðan er áhugamálið ekki alveg hentugt fyrir alla hjólamenn, t.d. racera og þannig :). endilega látið í ykkur heyra og sleppið skítkastinu.
Bergamo….Townhill…50km, ekkert hjól…grát… well ef það er einhver á ítalíu og á eitthvað nice downhill hjol þá má hann endilega lána mér það fyrir townhillið…. helvítis seinheppni að vera nýbúinn að selja hjólið sitt og síðan bara townhill hérna á næsta bæ.. bara rugl.
jebb það er officialy á sölu núna, ég var að hugsa um það en núna þarf ég að selja það til að losna við það áður en ég fer erlendis. sendið tilboð í það.
Er að selja fyrir félag minn Santa Cruz V10 2004 (gamla stellið) eðal hjól með 254mm travel að aftan og það er í topp standi Gaffall: Monster 200mm Dempari: 5th Element Bremsur: Magura Gustav Crank: Race Face North Shore BB: FSA Platinum Seat Post: Thompson Stem: Specialized Nobius Stýri: Ritchie Rizer Gjarðir: Santa Cruz Verð: Tilboð þetta hjól á að seljast á næstu vikum.
I want you….to vote…. yeah yeah… anyways.. kjósið þá sem ykkur líkar best. en það voru sendar inn alls 11 myndir í þessa keppni sem verður að teljast nokkuð gott, ég hefði viljað sjá meira, en þar sem við höfum bara fengið skíta veður í sumar þá er það ekkert skrítið að fólk hafi ekki verið að taka jafn mikið og ég bjóst við.
Veit einhver hverjir tók upp video þarna?? Mig sár vantar að komast í þetta til að reyna að koma þessu í helgarsportið…þar sem sumir klikkuðu á að láta fjölmiðla landsinns vita þá verðum við að notast við aðrar upptökur til að reyna að koma einhverju inní helgarsportið…..
Kosningu hefur verið lokað og hérna eru úrslitin úr þessari keppni. 1. BjörgvinTUCK - robbo 2. steinicancan - StebbZor 3. Timberhawk - Kindin: 3. bjoggi - StebbZor: Sigur myndin mun koma í stað Cedric kallsinns og hanga þar þar til næstu ljósmyndakeppni verður lýkur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..