Jæja ég ætla að senda þetta inn til að athuga hvort það sé einhver áhugi fyrir svona. Þetta er e-ð sem ég er að athuga en það er ekkert komið á hreint. Um Æfingabúðirnar. Búðirnar eru staðsettar á eynni Koh Samui í Tælandi, á hinni svokölluðu Lamai strönd. Ótrúlega fallegur staður sem er umkringdur fallegri náttúru og volgum sjó. Þessar æfingabúðir hafa alið af sér margann meistarann og margir stunda búðirnar af kappi. Margir Karate og Tae Kwon Do iðkendur, svo og keppendur í K-1, og aðrir...