Endursýningar er eitthvað sem upp á síðkastið hefur farið að fara æ meira í taugarnar á mér. Endursýningar eru í sjálfu sér ágætar, t.d. ef maður missir af uppáhaldsþættinum sínum, og eru þær á öllum sjónvarpsstöðvum með sjálfsvirðingu yfirleitt áður en svokallaður ‘prime time’ hefst og eftir að honum líkur. Hægt er að lifa við endursýningarnar á SkjáEinum þar sem að þær eru yfirleitt á ofangreindum tíma, þ.e. ekki á ‘prime time’, og það er oftast tekið fram að um endursýningar sé að ræða....