Þetta er líklega besta mynd ársins og ég hef aldrei heyrt jafn mikinn hlátur í bíósal áður, enda bjóst ég ekki við neinu öðru af Trey Parker og Matt Stone. Það var mjög gott hjá þeim að sýna alveg að þetta væri brúður þannig að maður var ekki að pirra sig yfir hvað þetta væri illa gert, fólk hló meira að segja af því þegar eitthvað var svo fáranlega gert. Myndin minnti einkum mikið á South Park þættina og þá er ég ekki að meina útlitið heldur voru sömu raddirnar og sömu blótsyrðin sem var...