Það er alltaf mjög leiðinlegt þegar menn eru að láta frá sér svona vitleysu, og þetta er ekki eina dellan í sambandi við unglingana. Sagt er í Golf á Islandi að María Jónsdóttir GA hafi unnið báða titla í 14 til 15 ára flokknum en það er rangt því að Arna Rún Oddsdóttir GH varð Íslandsmeistari í höggleik á Akureyri í þessum aldursflokki. Ætli þetta sýni ekki bara áhuga þess á því sem hann er að fjalla um.