Sæl. Ég ætla að koma með smá sögu af mér og vini mínum. þetta gerðist fyrir mörgum árum. við vinirnir vorum 7-8 ára gamlir og vorum einir heima, heima hjá honum. við skelltum einni af þungarokk plötum bróðir hans á fónin til að verða töff eins og hann :). en þegar við vorum búnir að hoppa eins og brjálæðingar í svona 20 mín þá heyrist allt í einu mjög hátt brot-hljóð. Ég stökk að tækinu og slökkti á músikinni. Við leituðum um allt hús en fundum ekki neitt. engin merki um brot á neinum hlut....