Fylkir og KR skildu jöfn, 1-1, í jöfnum og spennandi leik í 17. umferð Símadeildarinnar. Ómar Vald kom okkur yfir á 52. mín. með góðu skoti úr teignum eftir hornspyrnui Finns. Jón Skaftason jafnaði fyrir KR á 87. mín. einnig með góðu skoti úr teig. Eins og ofar segir var leikurinn jafn og spennandi. Hvorugt liðið fékk mörg færi í leiknum og voru leikmenn frekar pirraðir og spenntir. Dómari leiksins, Gylfi Orrason, átti fullt í fangi með að stjórn á leiknum. Eitt afar umdeilt atvik átti sér...