Sumarið 1995 í Helsinki, Finnlandi höfðu Ville (18), Mige (20) og Linde (19) lokið við skóla en vildu ekki fá sér vinnu strax. Þeir höfðu áhuga á því að geta framfleytt sér á tónlist svo að þeir stofnuðu hljómsveit með tveimur öðrum vinum sínum - Juhana Rantala (trommur) og Antto Melasniemi (hljómborð). Sveitin var kölluð His Infernal Majesty en vegna þess að fólk var stöðugt að spyrja þá hvort að nafnið tengdist djöfladýrkun (sem það gerði í fyrstu, en aðeins sem brandari) ákváðu þeir að...