Vá! Takk kærlega! Já er búin að fatta það að AFS er ekki starfandi í Bretlandi og er búin að heyra um Rotary en er ekki búin að kynna mér það nánar. Það sem þú segir um það hljómar samt mjög vel :) Já næsti möguleiki er örugglega að fara sem aupair. Systir vinkonu minnar er þannig núna í Danmörku og segir að það sé frábært. En ég er ekki alveg viss hvort ég sé tilbúin að fara út strax. Hef bara löngun til þess og er að kynna mér þetta og skoða möguleikana. Og aftur, takk kærlega fyrir hjálpina :)
Ja, veit ekki. Hef af einhverjum furðulegum ástæðum brennandi áhuga á Bretlandi og næstum öllu sem tengist því :O Langar því mikið til að upplifa menninguna þar og svoleiðis. Veit að það væri miklu meira spennandi að fara til meira framandi lands en einhvern veginn togar Bretland svo sterkt í mig. Svo, já…
Já, veit ef það stæði ekki undir myndunum hverjir væru þarna þá hefði ég örugglega ekki þekkt neinn…:P En Cam lék James í Twilight og e'ð í Never Back Down og svo var hann í the O.C. Myndir
Fæst held ég bara í öllum bókabúðum. Þegar hún kom fyrst út um jólin kostaði hún um 4.500 - 5.000 kr. sá hana samt um daginn í Hagkaup á útsölu og þá var hún á 1.990 kr. Ætli New Moon komi ekki bara út á íslensku um næstu jól…
Takk. Hef heyrt mikið um að þetta séu góðar bækur en einhvern veginn ekki nennt að fara og skoða þær betur. En veistu, er hægt að fá þær einhverstaðar ? =)
Já, er reyndar að fara suður um næstu helgi (er fyrir norðan =P) Kíki kannski í þessa búð þá. Geruru nokkuð svarað mér þessu ? Hvað kostar hver bók svona u.þ.b. ? Og eru margar bækur í seríunni?
Voða sorglegt. Kom mér voða óvart þegar ég heyrði þetta, en sá samt einhvern tímann þátt þar sem Chris Brown var að halda e'ð partí og plana það og þar var hann með svolítið skap… Heyrði líka að hann hefði næstum kyrkt hana og þegar löggan fann hana leit hún mjög illa út, öll marin og e'ð.
Á mjög erfitt með að svara, finnst þær allar góðar. Finnst söguþráðurinn í þriðju bókinni voða skemmtilegeur, en verð að viðurkenna að fyrsta bókin verður alltaf í uppáhaldi. Svo ætli ég velji hana ekki. =D
Ég á svona plastað bókamerki sem ég gerði einhvern tímann í skólanum og búin að eiga lengi, finnst það best. =) Annars finnst mér voða gott að vera með svona langa, mjóa bæklinga,(ef einhver veit hvað ég á við). =P
Ja, finnst að þeir ættu bara að halda sig við Taylor, frétti að hann væri að vinna mikið að því að verða stærri. En ja ef þeir neyðast til að skipta þá finnst mér Steven Strait ætti að verða Jacob. Einhvern veginn er hann alltaf Jacob í hausnum á mér. En las þetta viðtal við Michael Copon og finnst hann óttalega góður með sig… http://www.j-14.com/2008/12/j-14-exclusive-qa-with-michael.html Verð samt að viðurkenna að þeir Taylor og Michael eru líkir…
Team Edward :) Kolféll fyrir honum í fyrstu bókinni og bara búin að halda alltaf með honum. Jacob er samt fín persóna, fer samt stundum í taugarnar á mér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..