Ég á í erfiðleikum með hægri hendina hjá mér. Ég man ekki hvenær þetta byrjaði fyrst og hvað sem ég geri get ég ekki fattað af hverju þetta stafar. Þegar ég er að spila á gítarinn, kassann eða rafmagnsgítarinn og ég er “sitjandi” tek það fram, þetta kemur ekki fyrir spili ég standandi með ól, að þá stoppar allt blóðstreymi til handarinnar. hún verður bara dofin eins og ég hafi sett belti á handlegginn á mér til að stoppa blóðrásina. Þetta er að verða vandamál. Ég get ekki orðið spilað lengur...