Sælir, Þannig er mál með efni að ég vil fara að æfa mig aftur eftir meiðsli (er í fínu lagi með mig núna), og í fyrsta sinn vil ég gera það í líkamsræktarstöð. Ég ætla að taka allan pakkan á þetta, kreatín, matarprogram og lyftingar eins oft og ég græði á. Ég þarf e-ð program og aðstoð við að komast inn í þetta, vil helst ekki kaupa mér kort í world class fyrr en ég veit hvernig ég stend að því. Hvernig er það, var ekki eitthvað um að maður eigi að geta fengið fría hjálp að búa til program...