Læðan mín er líka svona kjaftaglöð og hefur alltaf verið það. Er þetta ekki bara eins með kettina og mannfólkið- þeir hafa bara mismikla þörf fyrir að tjá sig? En það getur verið bráðfyndið að hlusta á köttinn minn, hún er örugglega með 50 mismunandi mjálm, stutt, löng, rosalöng, hávær, með malinu í bland við mjálmið og allt þar á milli. Svo er bara gaman að geta spjallað við köttin og fá alltaf svar :)