Ósköp er dapurlegt að horfa upp á Samfylkinguna nú á síðustu dögunum fyrir kosningarnar. Mogginn og Fbl þurfa bráðum að fara að gefa út aukablöð undir auglýsingarnar þeirra og svo er allt í pati. Í dag var einhver stórfurðuleg ný útgáfa af karlahatursforsætisráðherrauglýsingunni og svo ennþá furðulegri auglýsingar sem mætti kalla “skoþeirkjósaokkur” auglýsingar. Það er svo augljóst að þetta er langt frá því að vera heilsteyptur stjórnmálaflokkur. Það getur enginn ákveðið hvað er vinsælt...