Tekið af mbl.is Silvía Nótt mætti ekki á blaðamannafund vegna veikinda Silvía Nótt, sem tekur þátt fyrir Íslands hönd í Evróvisjón söngvakeppninni, mætti ekki á sameiginlegan blaðamannafund Norðurlandanna í Aþenu í morgun vegna veikinda. Bergþóra Jónsdóttir, blaðamaður Morgunblaðsins sem er stödd úti í Grikklandi, segir Silvíu veika vegna þreytu og álags. „Hún hefur verið undir ofboðslegu álagi, mikil ásókn fjölmiðlafólks í hana þar sem hún hefur sýnt sig. Á blaðamannafundinum á...