Þeir eru ekki allir frá Brooklyn, þeir hafa aldrei verið algjörlega fastir við neina sérstaka gerð tónlistar og hafa lengst af verið að gera rap/hiphop þó aðrar stefnur blandist inn í það… beastie Boys eru þeir Adam Yauch, Mike D og Adam Horovitz (Adrock) og hóf hljómsveitin göngu sína árið 1981 og var þá pönkband með tveimur öðrum meðlimum. Fyrsta almennilega “hiphop” útgáfan kom árið 1985 og var það She´s On It/Slow And Low smáskífan. Síðan kom út Licenced To Ill árið 1986, Paul´s Boutique...