Ég lenti í svipuðu fyrir ákkúrat viku síðan. Ég vissi ekkert hvað þetta var, en þetta var ekki á sama “tilverustigi” og venjulegur draumur. Mig var bara búið að dreyma svona venjulega vitleysu. Svo “vaknaði” ég.. var alveg 100% meðvituð og fannst ég opna augun, og þá var ég inn í herberginu mínu.. en það var búið að raða húsgögnunum upp á nýtt í því. Og svo sá ég skugga labba framhjá herberginu mínu, og heyri svo einhvern koma inn í húsið. Þá ætla ég að hreyfa mig, en var þá alveg föst,...