Jáá, virkilega skemmtilegt tungumál.. Ég fór með bekknum í skólaferðalag til Færeyja fyrir 2 árum, og við “unnum hörðum höndum” við það að læra öll þessu venjulegu íslensku orð sem þýða eitthvað klúrt á færeysku. Eins og t.d. samloka, fleyja, moggi og eitthvað fleira sem ég man ekki eins og er. Haha minningar, þetta var einkar skemmtileg og eftirminnileg ferð :Þ