Krakkar geta verið svo grimmir. Ég veit ekki hvað ég gerði ef ég hefði lent í svona með litlu systur mína, ég hefði ábyggilega grátið meira en hún. Einhverntímann kom systir mín heim grátandi því það var einhver stelpa sem var 4 árum eldri en hún sem hafði hrint henni, sparkað í hana og lamið hana, hún var öll út í skrámum. Held ég hafi sjaldan verið jafn reið. Enda hljóp ég út með systur minni og sagði henni að sýna mér hvar þessi stelpa væri. Varð alveg vitlaus út í hana og svoleiðis...