Þetta er svoddan “kokteil” ljóð sem ég samdi þegar mér leiddist í dönskutíma, hugsandi um Hallormsstaðaskóg sem mér þykir svo vænt um. Skógurinn Um veturinn er liggur skógurinn í dvala þegar vindurinn vælir og snjórinn leggst á greinar hans eins og kuldaleg sæng. Um vorið er fólkið vaknar til lífsins með bros á vör og þrestirnir syngja á nýútsprungnum greinunum. Um sumarið er hláturinn glymur þegar hamingjan ríkir, sólin skín og trén brosa við í blóma lífsins. Um haustið er söngurinn þagnar...