Ég álpaðist inn á þessa heimasíðu eftir að hafa séð grein á niðurstöðum google-leitar um félagshyggju. Mér fannst hún, ásamt svörunum, áhugaverð og eftir að hafa lesið þau öll tók ég saman langt og ítarlegt svar við ýmsum þeim sem höfðu tjáð sig. Það var ekki fyrr en ég hugðist senda það inn sem ég tók eftir því að síðasta svarið hafði komið í júlí árið 2003 og fannst mér heldur súrt í broti að senda það inn vitandi að enginn myndi lesa það. Þess vegna hef ég ákveðið að senda það inn undir...