Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Pæling um Padmé og Leiu - RotS Spoiler! (10 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Jæja, ég fór að sjá Revenge of the Sith á föstudaginn var, og varð ekki fyrir vonbrigðum. :D Frábær mynd, næstum því eins góð og gamla trílógían (ég fílaði alveg ep. 1 og 2, en þær jafnast engan veginn á við gömlu myndirnar. En það er önnur saga). En það sem ég vildi tala um var eitt atriði í Revenge of the Sith - eða öllu heldur, atriði í RotS sem stemmir ekki alveg við eitt atriði í Return of the Jedi. - Og nú vil ég biðja alla þá sem eru ekki búnir að sjá Revenge of the Sith, að ýta strax...

Richard Biggs látinn :( (2 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég veit ekki… kannski eru þetta “old news” fyrir einhverja hér, en ég var að skoða einhverja B-5 aðdáendasíðu um daginn (minnir að það hafi verið The Lurker's Guide to Babylon 5), og sá þar að Richard Biggs, sem lék Dr. Franklin, lést í fyrra (2004) af heilablóðfalli, 44 ára að aldri. Ég hafði ekki hugmynd um þetta, þannig að þetta er ákveðið sjokk (Dr. Franklin var einn af mínum uppáhalds karakterum). En betra seint en aldrei… megi hann bara hvíla í friði blessaður kallinn. RIP.

Maiden - Lesið! ;) (8 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Bara láta vita að um 3 leytið í dag var nóg eftir af miðum á Maiden (A svæði) í Íslandsbanka í Kringlunni! :D Þannig að drífið ykkur. ;) Ég sjálf rölti út í Kringlu um 3 leytið, og tryggði mér eintak. Og þurfti ekki einusinni að standa í röð. :)

Heill Elvis Presley sjötugum! (1 álit)

í Gullöldin fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Jæja, í dag er 8. janúar, og í dag hefði Elvis Presley orðið sjötugur, þar sem hann er fæddur þennan dag árið 1935. En því miður lést hann langt fyrir aldur fram… :( En til hamingju samt, Elvis og Elvis-aðdáendur! :) David Bowie er hinsvegar sprellifandi ennþá, og hann á líka afmæli í dag… hann er 58 ára. Til hamingju með það. :)

Nýr EE trailer! (5 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum
Það er kominn splunkunýr trailer fyrir EE útgáfuna, 6 mínútna langur. Allir að fara og kíkja! :D www.lordoftherings.net

22. september :) (2 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Í dag er 22. september, sem í LOTR er afmælisdagur Frodo og Bilbo Baggins, og margir Tolkien-nördar halda upp á sem alþjóðlegan hobbita-dag. Þannig að ég vil bara óska þeim Frodo og Bilbo, svo og öllum öðrum hobbitum þarna úti, til hamingju með daginn. :D

LOTR Bjórauglýsing! (3 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Finnst ykkur góður bjór? Kíkið þá á þetta! http://www.popcorndreams.com/movies/LOTR_Bud.mov Þetta er gargandi snilld! :D Tekur kannski smá tíma að downloadast…

Smávegis Arwen grín (0 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Fyrir ykkur sem voruð óánægð hvað hlutverk Arwenar var stækkað í LOTR myndunum… það hefði getað verið miklu verra. Lesið þetta… Arwen, Superhero ———————— by Steve Dufour I understand that Mr. Jackson is planning to expand Arwen’s role. Well, here’s my idea. Arwen dances the Springle-ring with Aragorn at her one-eleventy-first birthday party. After the dance they sit on the grass to rest. Arwen finds a gold ring on the ground. She slips it on her finger and disappears, causing great excitment...

Á Motown heima hér? (6 álit)

í Gullöldin fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég var á Motown-sýningunni á Broadway í gærkvöldi, og fór þá að hugsa… Eiga greinar um Motown listamenn ekki heima hér á Gullöldinni? T.d. Stevie Wonder, James Brown, Aretha Franklin, Tina Turner, Diana Ross and the Supremes, Temptations, Marvin Gaye o.s.frv.? Ég er ekki bara að spyrja fyrir mig, ég veit um marga Hugara sem hafa verið að pæla í þessu… Ennfremur, væri hægt að senda greinar um fólk eins og ABBA, Börbru Streisand, 70's diskó, og svona “gamalt klassískt popp” hingað?

Sálin sogin úr manni... en hvar er líkaminn? (4 álit)

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hæ! Ég var að enda við að lesa 4. Potter-bókina eftir svolítið hlé, og fór þá að hugsa um svolítið í sambandi við Dementor-ana. Eða öllu heldur, eitt sem þeir gera gjarnan. Eins og þið vitið, þá eru Dementorar stundum notaðir í það að refsa glæpamönnum á þann hátt, að þeir “kyssa” þá, og sjúga þannig sálina úr þeim. Þetta var t.d. gert við Barty Crouch yngri í 4. bókinni, eftir að hann hafði gerst sekur um að a) vera Death Eater, b) myrða pabba sinn, Barty Crouch eldri, og c) þykjast vera...

Metropolis??? (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hey kvikmyndanördar! Ég var að skoða nokkra trailera á Háhraða, og rakst þá á trailer af hinni eldgömlu klassísku kvikmynd Metropolis eftir Fritz Lang. Nú, ég kíkti á trailerinn, og skildist á honum að það ætti að fara að endurútgefa Metropolis í fullri lengd, og með upprunalegu tónlistinni. Veit einhver meira um málið? (Ég hef nefnilega ekki heyrt neitt). Á að gefa myndina út á DVD bráðum, eða er það þegar búið? Eða á að sýna myndina aftur í bíó? Mig langar nefnilega ekkert smá að sjá þessa...

Viðtal við Bruce D í Mogganum!!! (2 álit)

í Metall fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mogginn birti í gær mjög skemmtilega og ítarlega grein + viðtal við hann vin okkar Bruce Dickinson. Mogginn virðist vera á einhverju Maiden-flippi þessa dagana? :D Þið getið líka séð þessa grein hér: http://www.mbl.is/mm/frettir/show_framed_news?cid=100&nid=1039638

Visions of the Beast :) (1 álit)

í Metall fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Bara minna fólk á það á að DVD safnið með Iron Maiden, “Visions of the Beast” er komið! :) Soldið dýrt að vísu, enda tveir DVD diskar; kostar 4300 kall. Þannig að ég ætla að bíða til 18. - Einhver búinn að kaupa? ;)

Nina Simone látin (5 álit)

í Jazz og blús fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Jæja, þá er enn ein jazzstjarnan horfin: Söngkonan Nina Simone, sem er kannski best þekkt fyrir lagið “My Baby Just Cares For Me” lést síðastliðinn mánudag, 70 ára að aldri. Hún hafði verið heilsulítil um tíma. Nina var að mörgu leyti merkileg kona; hún lærði klassískan píanóleik í Juillard School of Music í New York, sem var óvenjulegt fyrir blökkukonu á þessum tíma (sjötta áratugnum). Hún samdi flest efni sitt sjálf. En hvað um það. Ég sá þessa frétt í Fréttablaðinu og endursagði hana bara...

Var Viggo Mortensen á Íslandi um daginn??? (11 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Eða var það bara aprílgabb?

Kv. Hrafnista

Girls only! :D (2 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Biðst forláts piltar… :D En vinkona mín í Bandaríkjunum sendi mér þetta netta persónuleikapróf. Mér fannst það nokkuð skondið… :) Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate? brought to you by Quizilla

Kv. Hrafnista (áður Delenn)

Mynd... ógeðsleg??? (9 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég skil ekki alveg hvað á að vera svona “ógeðslegt” við stelpugreyið sem er á myndinni sem er hér núna (26. des). Mér sýnist hún vera með ósköp venjulegt útlit! Frekar sæt ef eitthvað er. Amk er ég sjálf ekkert fallegri þegar ég er ómáluð… hmmmmm…

Kv. Hrafnista (áður Delenn)

Söngvari The Clash látinn! :( (4 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sorgarfréttir fyrir aðdáendur The Clash: Joe Strummer, söngvari hljómsveitarinnar, lést á heimili sínu þann 22. desember sl., 50 ára að aldri. Dánarorsök er ókunn, en sumir telja að um hjartaáfall hafi verið að ræða… Ég sjálf var kannski ekki beint aðdáandi, en þeir áttu fullt af góðum lögum sem maður á góðar minningar við. :) Og það er alltaf sorglegt þegar einhver deyr svona fyrir aldur fram… :( Rest in peace Joe…

Kv. Hrafnista (áður Delenn)

Andromeda (7 álit)

í Sci-Fi fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Hefur einhver hérna horft á Andromedu-þættina (byggða á hugmynd Gene Roddenberry)? Ég hef leigt nokkra þætti (reyndar allt fyrsta seasonið) niðri í Nexus, og finnst bara nett gaman að þeim. Fínasta afþreying. Hvað segið þið? :)

Kv. Hrafnista (áður Delenn)
• Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok