Ég á fisk sem heitir Guffi. Þessi fiskur á langa sögu að baki sér og ég ætla að skrifa um ævi hans. Þetta byrjaði allt árið 2000 þegar ég var að klára 3.bekk. Vinur minn, eða systir vinar míns átti tvo gullfiska. Annar þeirra hét Guffi og ég man ekki hvað hinn hét. Einn góðan veðurdag þegar ég var í heimsókn hjá vini mínum þá stökk Guffi, gullfiskurinn, uppúr búrinu sínu. Mér brá rosalega þegar ég heyrði svona ‘skvabb’ hljóð en vinur minn brást skjótt við og tróð hendinni inní sokk og greip...