Fjórtán ára unglingur trylltist í gærkvöldi þegar foreldrar hans létu aftengja Netið svo hann gæti ekki haldið áfram í tölvuleik, sem hafði heltekið hann. Hafin eru námskeið í Reykjavík til að koma vaxandi fjölda tölvufíkla til hjálpar. Foreldrar piltsins, sem búa í Hafnarfirði, kölluðu á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þegar þeir fengu ekki við neitt ráðið og unglingurinn gekk berserksgang og braut og bramlaði innanstokksmuni. Lögregla þurfti að brjóta upp hurð til að komast að piltinum og...