Benzinn minn. E420 sportline með AMG fram og afturstuðurum. 280 hestöfl, 400 nm. af togi, takmarkaður hámarkshraði (255-260), með nánast öllum aukabúnað sem völ er á frá þessum tíma. http://www.simnet.is/hlynzi/benz (myndir, aðallega fyrir)
Þessi bíll er hannaður af Pininfarina (þeir sömu og hanna Ferrari) og það leynir sér ekki að þetta er einn fallegasti bíll sem hægt er að fá í dag. Persónulega finnst mér hann mjög plain í útliti á mynd, en ótrúlega fallegur þegar maður sér hann venjulega. Það er allavegana einn svona bíll hér á landi.
Fór á rúntinn í gærkvöld, og vinur minn fann sér leðju, og hvítur bíll lætur óhreinindin á sér sjá. svo var hann að þvo..og þetta er afleiðingin. Canon Ixus 430
Þetta er æðislegur bíll, knúinn af 3.2L vél, sem skilar honum 250 hestöflum og kemur þessu vel áfram, eða allt uppí 250 km/klst, jafnvel meira. Ég fæ mér svona ef ég fæ að ráða.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..