Ég hef selt benz-djöflinum sál mína má eiginlega segja. Ég er búinn að vera með próf í 6-8) mánuði, og búinn að eiga 3 bíla síðan í nóvember í fyrra. Fyrst fékk mér hræ sem var algjör dós, 190E (2 lítra sjálfskiptur ekinn 220 þúsund, vélin og gírkassinn var það eina sem var eftir af þessum bíl) hann fór í pressuna fyrir ekki svo löngu. Svo eftir þá vitleysu fékk ég mér 230E, 1987 árgerð, sem er klassabíll. Ég seldi hann fyrir nokkru síðan, og hitti eigandann um daginn, hann hefur ekki ennþá...