Hjálp!!! Fyrir u.þ.b. mánuði setti ég upp windows xp professional á tölvuna mína, allir aðrir leikir virka vel en þegar ég reyni að spila Need For Speed 3 og SimCity 3000 þá kemur ljós á tölvunni í smástund en síðan gerist ekkert. Þetta finnst mér mjög skrítið því að þeir virkuðu báðir í Win2000 Pro og XP er nú byggt á því. Það var ekkert mál að setja leikina upp en þegar maður fer í þá þá gerist ekkert. Ef það skiptir einhverju máli þá er ég búinn að náð í öll Critical Update frá microsoft...